Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Miss Marvellous
  • Staður: Nottingham
  • Atvinna: Mastersnemi í alþjóðasamskiptum
  • Um mig: Hef nýlokið mastersnámi í mannréttindafræðum og er enn að læra. Hef gaman af ferðalögum (ekki tjaldferðalögum!), matargerð, söfnun uppskrifta, söng, leikhúsferðum og bókalestri. Mikil áhugamanneskja um mannréttindi, sagnfræði og mannlegt eðli.

Á lífi

11. desember 2008 klukkan 01:29
Já, ég er ekki dauð úr öllum æðum og kem hér með smá update af fjölskyldunni.
Hmm....hvað hefur gerst síðan síðast.......allir búnir að vera lasnir og ég mest. Fékk ógeðslegan vírus sem lagði mig í rúmið í nokkra daga.
Fór í lok nóvember með einum prófessornum úr skólanum og nemendunum sem eru með mér í kúrs hjá henni til London. Skoðuðum The UK Office of the European Parliament og European Commission Office. Sá byggingar í London sem ég hef ekki séð áður, alla vega ekki í návígi, eins og Westminster Abbey, Big Ben og allar stjórnarráðsbyggingarnar sem eru allar á sama svæðinu í Westminster.....og já, ekki má gleyma Downingstræti 10! Bretinn í hópnum vissi nákvæmlega hvar allar þessar byggingar voru og var okkar leiðsögumaður í ferðinni. Við röltum svo upp á Leicester Square og hann sýndi okkur hvar stjörnurnar labba eftir rauða dreglinum þegar verið er að frumsýna kvikmyndir. Enduðum daginn á kaffihúsi og svo á pöbb (að sjálfsögðu) þar sem við fengum okkur einn styrkjandi áður en við héldum heim með brjáluðum bílstjóra á minibus. Ég var sannfærð um að mín dauðastund rynni upp þetta kvöld, og það er sko ekki hægt að kenna minni bílhræðslu um, því það voru allir dauðhræddir!

Magnús er búinn að vera á tónleikaferðalagi með breskri hljómsveit og róta fyrir þá. Frekar stór hljómsveit hérna og því mikill heiður fannst honum að vera beðinn að koma með í þessa ferð. Hann fær líka vel borgað fyrir svo hann ætti að geta keypt jólagjöf handa Emmu sinni, sem saknar hans óskaplega mikið og getur ekki beðið eftir að hitta hann um helgina :)

Og aðalfréttin......í dag útskrifaðist ég með mastersgráðu í Global Citizenship, Identities and Human Rights. Þar sem þetta er frekar erfitt að muna, þá segi ég bara mannréttindafræði því það er þannig sem námið er skilgreint hjá Lín. Athöfnin var voða virðuleg en sem betur fer mun styttri en ég bjóst við, rúmlega klukkutími. Engin óþarfa ræðuhöld og 450 nemendur útskrifaðir á þessum tíma. Á morgun og hinn eru svo aðrar útskriftarathafnir, væntanlega með svipuðum fjölda í hvort sinn. Ég stóð í þeirri meiningu að nemendafjöldi í skólanum á hverjum tíma væri um 15.000 en komst að því í dag að það eru 30.000, frá um 140 löndum!! Ég tók mig ágætlega út í múnderingunni og set inn myndir við tækifæri. Laugardaginn 20. des ætla ég svo að hafa smá útskriftarveislu.

Fer í jólafrí á föstudaginn og þá er að bretta upp ermar og gera eitthvað fyrir jólin. Þarf reyndar að læra allt fríið, en maður verður nú að halda upp á jólin þrátt fyrir það. Annars var ég að lesa að vísindamenn hafa fundið út að Jésús fæddist ekki á þessum tíma, heldur á 17. júní, þannig að héðan í frá geta Íslendingar fagnað lýðveldinu og fæðingu frelsarans á sama degi og sleppt öllu stússi í desember. Það sparar fullt af peningum :)
En alla vega, ég þarf að gera laufabrauð, soðbrauð, ís, tertubotna, kannski eina eða tvær smákökutegundir, rauðkál...og kannski eitthvað fleira. Fáum sent hangikjöt og Nóa konfekt frá Íslandi ásamt einhverju fleiru, og svo þarf ég að semja við hana Sunnu mína um að redda okkur Nóatúns hamborgarhrygg, malti og appelsíni. Kostar hönd, fót og auga en sumu er ekki hægt að sleppa á jólunum :)

Ætla að fara að sofa í hausinn á mér. Er dauðþreytt eftir daginn :)

Miss M.
Miss Marvellous
Erla systir skrifar ...
 
Til hamingju með útskriftina elskan. Eigum sko eftir að sakna ykkar um jólin. Farðu bara að drífa þlg heim í vor, það er ekkert vit í að hanga þarna í Bretaveldi lengur. Smári er orðinn svo pólitískur að það má ekkert kaupa frá Bretlandi lengur!! Þverneitar að kaupa mackintosh fyrir jólin. Held að við krakkarnir stelumst til að kaupa og felum þetta eins og eiturlyf og étum á næturnar. Bestu kveðjur til allra og heyrumst um jólin.
11. desember 2008 klukkan 08:40
Miss Marvellous skrifar ...
Miss MarvellousHahahaha.....ertu ekki búin að segja honum að ég mun sjá um Brown. Málið er í vinnslu! Við eigum sko eftir að sakna allra um jólin. Það er er verða kominn smá kvíði í mig, er hrædd um að sitja öll jólin og þurrka tár og snýta mér :(
11. desember 2008 klukkan 09:33
Anna Sigga skrifar ...
 
Til hamingju með þennan svaka titil elsku vinkona! Allt gott að frétta hér. Ég var að komast í jólafrí og byrja að undirbúa jól um leið og ég er búin að jafna mig eftir skólann. Við verðum öll hér í Hafnarfirði um jól en förum norður um áramót. Söknum ykkar! Heyri í þér við tækifæri.
11. desember 2008 klukkan 19:47
Sunna skrifar ...
Þú verður bara að láta mig vita hvað ég á að kaupa sem fyrst elskan, lokadagsetning að senda er 18. des :)
12. desember 2008 klukkan 01:42
Svanfríður skrifar ...
 
Til hamingju með útskriftina-frábært!!! Gaman að heyra að Magnús skuli vera að róta, frábær upplifun fyrir hann og gott veganesti líka og tilefni í margar sögur í framtíðinni!!!
Hlakka til að sjá myndir:) Hafðu það gott, Svanfríður.
13. desember 2008 klukkan 05:00
Miss Marvellous skrifar ...
Miss MarvellousSvanfríður, það eru myndir á facebook síðunni minni :)
13. desember 2008 klukkan 11:51
Sunna Björk skrifar ...
 
ég hef ákv. að halda hönd og fót og hafa ekki hamborgarahrygg um jólin, frekar um áramótin þegar settið kemur!
14. desember 2008 klukkan 11:26
Miss Marvellous skrifar ...
Miss MarvellousEnda er það afar viturlegt fyrst þau eru að koma :) Skiptir engu þótt maður hafi eitthvað annað á aðfangadagskvöld.
14. desember 2008 klukkan 13:58
Sunna Björk skrifar ...
 
segðu
14. desember 2008 klukkan 20:58
Ellen Óskarsdóttir skrifar ...
 
Hellu Nottsbúar,

og Þorgerður til lukku með útskriftina ;) Vonum að þið hafi það gott í Bretlandinu góða og það sé ekki komin mikil kreppa þar... Nú af okkur er helst að frétta að bóndinn á heimilinu er komin með vinnu í Köben, já Köben og þarf að vera þar eina viku í mánuði ;) Svona er nú "nýja Ísland" í dag. Kellingin er byrjuð að vinna eftir fæðingarprlof og grísirnir stækka og dafna.

Óskum ykkur alls hins besta og vonum að þið hafið það gott yfir hátíðarnar.

Kv. Ellen og co.
18. desember 2008 klukkan 15:25
Ellen Óskarsdóttir skrifar ...
 
hellu aftur mín kæra,

og takk fyrir kveðjuna. Heyrðu já ég keypti þetta alltaf í House of Fraser í Viktoríu centre. Svo kom að því meðan ég bjó úti að þeir hættu að vera með þetta og tóku inn Shiseido í staðin en það er sami framleiðandi og svipaðar vörur, ég nota þær enn í dag. Ég einmitt leitaði og fann þetta hvergi.

Hilsen í kotið, Ellen
19. desember 2008 klukkan 13:12
Miss Marvellous skrifar ...
Miss MarvellousÉg er búin að nota Shiseido í mörg ár en prófaði krem frá Kanebo í sumar og finnst það svo æðislegt. Langaði að fá það aftur. En ég kaupi þá bara aftur Shiseido, enda eru þau eðal :)
19. desember 2008 klukkan 19:06
Milla junior skrifar ...
 
Tiiiillllll hammmmingjuu með áfangann.
Ég fyllist algeru frænkustolti og dauðöfund í þinn garð að hafa drifið þig í þetta.
Bara aftur til hamingju.
Jólakveðja frá Húsavík.
30. desember 2008 klukkan 20:52
Miss Marvellous skrifar ...
Miss MarvellousTakk Milla mín. Bestu kveðjur til ykkar allra og vonandi höfðuð þið það gott yfir hátíðirnar. Ætlarðu ekki að fara að koma á Facebook eins og hálf ættin? :)
01. janúar 2009 klukkan 03:44

Skrifa athugasemd