Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Miss Marvellous
  • Staður: Nottingham
  • Atvinna: Mastersnemi í alþjóðasamskiptum
  • Um mig: Hef nýlokið mastersnámi í mannréttindafræðum og er enn að læra. Hef gaman af ferðalögum (ekki tjaldferðalögum!), matargerð, söfnun uppskrifta, söng, leikhúsferðum og bókalestri. Mikil áhugamanneskja um mannréttindi, sagnfræði og mannlegt eðli.

Þjóðhátíðardagur

17. júní 2007 klukkan 14:58

Gleðilegan þjóðhátíðardag allir Brosandi
Lífið gengur sinn vanagang hérna í Nottingham. Ungarnir eru flognir úr hreiðrinu og á vit ævintýranna.
Á föstudaginn fórum við Maggi Jr. í bæinn, sem var mjööög spes upplifun. Málið var nefnilega, að það brustu á þær mestu þrumur og eldingar sem við höfum á ævi okkar séð og heyrt, með tilheyrandi úrfelli. Vorum stödd inni í búð, þegar við heyrum í þrumum. Fórum út að dyrum og þá mögnuðust þrumurnar svo um munaði, eldingarnar lýstu upp himininn og það var eins og hellt væri úr fötu, BÓKSTAFLEGA!! Hávaðinn var gríðarlegur, eins og himnarnir væru að rifna, og það meira að segja snarkaði í eldingunum, eins og maður hefur bara heyrt í bíómyndum!

Við litum niður eftir götunni, þar sem alltaf  er iðandi mannlíf, en hún var algerlega mannlaus! Fjólublárri eldingu laust niður við ráðhúsið, sem er við endann á þessari götu, það heyrist óp, og einn maður kemur hlaupandi yfir götuna og forðar sér í skjól undan rigningunni. Fjórir unglingar komu hlaupandi og framhjá dyrum verslunarinnar sem við stóðum inni í, og það var ekki þurr þráður á þeim! Þetta var ótrúlegt og alveg þrælmagnað!! Og hversu dæmigert er það, að ég sem fer ALLTAF með regnhlíf í bæinn, gleymdi því þennan dag Óákveðinn

Í gær héldum við upp á 17. júní með Sunnu og Óla, Dóru vinkonu Sunnu, sem er í heimsókn hjá henni og Ragnari og Evu, sem er vinafólk Sunnu og Óla, en þau búa í kastala í Leichesterhire. Eldgömlum kastala á ótrúlega fallegum stað. Ég, Sunna og Dóra fórum út að labba með börnin, eftir að smá þrumuveður hafði gengið yfir, og okkur leið eins og við værum staddar í bíómynd eftir Jane Austen Brosandi
Í kvöldmat fengum við svo rosalega góðan mat, grillað nautakjöt og kjúkling með ljúffengu meðlæti, kampavíni og rauðvíni.

Á morgun er svo komið að Lundúnaferð okkar fjölskyldunnar. Förum með lest í fyrramálið, verðum komin til London um hádegi, skreppum í bæinn og borðum á Sticky Fingers um kvöldið. Á þriðjudaginn verður sennilega farið í Imperial War Museum, meðal annars. Þá um kvöldið eru svo Ozzy Osbourne tónleikarnir, sem verða mínir fyrstu tónleikar, svona fyrir utan þá sem ég hef sjálf sungið á, og fleiri klassíska tónleika. Þannig að þetta verður sérstök upplifun fyrir mig Brosandi

Læt þetta duga í bili. Skrifa aftur þegar við komum frá London.

Miss M.

Miss Marvellous

Miðvikudagur

13. júní 2007 klukkan 15:02
Vaaaaá, hvað fyrirsagnirnar eru alltaf frumlegar hjá mér Hlæjandi
Gleymdi að segja ykkur um daginn að við Viktor fórum í leikhús um um síðustu helgi og var það fyrsta leikhúsferðin okkar hér í Nottingham. Við sáum Scooby Doo, sem var alveg frábært. Alltaf gaman að fara í leikhús, hvort sem um er að ræða barna-eða fullorðinssýningar.

Ferðalangarnir eru farnir heim til Íslands eftir vel heppnaða ferð. Reyndar komu þau öll hingað heim seint á sunnudagskvöld, en ætluðu að vera fram á mánudag. Þau ákváðu að sleppa við alla traffíkina daginn eftir, sem gaf þeim aukadag í búðum, enda mikið verslað. Allir voru rosalega ánægðir með Download Festival og Maggi og Börkur komu sólbrenndir til baka. Alveg eru þetta frábærir krakkar, skemmtileg og ekkert vesen á þeim. Ætla ekki að reyna að lýsa lyktinni sem fylgdi þeim hingað á sunnudagskvöldinu, en það skánaði þegar allir höfðu farið í sturtu og skipt um föt, og ég skipaði þeim að setja skóna sína í poka og út undir bert loft Brosandi

Um helgina er búið að skipuleggja Íslendingahitting, hversu margar fjölskyldur verða á honum er ekki alveg ákveðið enn. Við og Óli og Sunna höfðum ákeðið að skreppa til London á laugardaginn og fara á 17. júní hátíðarhöldin þar, sem haldin eru þann 16. júní Óákveðinn

Við hættum hins vegar við það, sem er ágætt þar sem við erum að fara til London á mánudaginn. Ætlum að skoða stríðsminjasafn, borða góðan mat og rölta um Covent Garden meðal annars. Erum búin að finna veitingastað sem heitir "Sticky Fingers". Á heimasíðu þeirra eru talin upp nöfn frægra aðila sem þar hafa borðað. Á listanum má finna ekki ómerkilegra fólk en Díönu prinsessu ásamt Harry og William, Guns´n Roses, Meat Loaf, Eric Clapton, Diana Ross, Robert Plant, Gary Neville, Phil Neville, Bob Dylan, Andy Cole, Ryan Giggs, Jon Bon Jovi og margir fleiri.

Viktor er búinn að ákveða að biðja um sætin sem Guns´n Roses sátu í, en ég ætla að sitja þar sem Díana prinsessa sat og biðja um sama mat og hún, sé hann enn á matseðlinum Brosandi

Var að setja inn myndir af ferðalöngunum og af einum unganum úr hreiðrinu, en hann álpaðist til að fara úr grillinu og komst svo ekki upp aftur litli aulinn, svo Maggi varð að hjálpa honum.

Miss M.




Miss Marvellous

Innrás frá Íslandi

06. júní 2007 klukkan 12:55
Hér var mikið um að vera í gærkvöldi og í morgun, en í gær fékk Maggi 5 vini sína í heimsókn og gistingu, en þau eru öll að fara á Download Festival í kvöld og fram á sunnudag eða mánudag. Gestirnir fara svo heim til Íslands á þriðjudaginn. Börkur vinur hans svaf uppi í herbergi hjá honum í nótt, en hin fjögur hírðust í tjöldum í garðinum. Því miður var ekki mjög hlýtt í nótt, svo það var frekar kalt hjá þeim greyunum. Í morgun smurði ég handa þeim brauð og eftir að allir höfðu farið í sturtu var haldið af stað í bæinn. Stelpurnar tvær í hópnum ætla að sjálfsögðu að fara í fatabúðir, eins og almennilegum kvenmönnum sæmir Brosandi
Nú styttist óðum í afmælisdag Viktors. Það er hefð fyrir því í skólanum hans að afmælisbarnið komi með nammi handa bekknum í tilefni dagsins. Að sjálfsögðu kom þjóðarrembingurinn upp í okkur og viljum við bjóða krökkunum upp á besta sælgæti í heimi, sem kemur að sjálfsögðu frá Íslandi!! Ég hef því sent Frú Margréti vinkonu minni tölvupóst, og beðið hana að versla fyrir mig sælgæti, ásamt fleiru nauðsynlegu, sem ekki fæst í þessu annars ágæta landi.

Eitthvað var hún að efast um að þessi langi listi af sælgæti ætti allur að fara ofan í börnin í skólanum, og viðurkennist það hér með, að ég og fjölskylda mín ákváðum að panta meira en til þarf ofan í krakkaskarann og éta það án samviskubits. Ég meira að segja pantaði flatkökur því ég er komin með alvarleg fráhvarfseinkenni Glottandi

Hilsen
Miss M.
Miss Marvellous

Guten Tag

05. júní 2007 klukkan 00:06
Jæja, þá eru ungarnir komnir úr eggjunum, og ekki eru þeir nú frýnilegir greyin. Viktor er rosa spenntur yfir þeim og fannst gaman að sýna gestunum sem komu um helgina herlegheitin. Það kom upp hugmynd um að kveikja upp í grillinu og bjóða upp á ungasteik í kvöldmat á laugardaginn, en ég held að Sunna og Óli hafi bara verið fegin að hugmyndin fékk dræmar undirtektir. Þau fengu svínalundir í staðinn, sem ég vona að hafi bragðast betur en ungasteik.

Auðunn gisti hjá Viktori á laugardagsnóttina og það var sko ekkert lítið spennandi. Auðunn vaknaði fyrir allar aldir heima hjá sér og vildi pakka niður í ferðatösku, en foreldrunum tókst að tala hann inn á að bakpoki væri fínn kostur fyrir eina nótt Hlæjandi

Á sunnudaginn fórum við með þá á bílasýningu í Wollaton Hall, sem er hérna inni í borginni. Þar voru til sýnis gömul farartæki af öllum stærðum og gerðum, tívolítæki, skemmtiatriði og söluvagnar. Mjög skemmtilegt og ekki spillti veðrið fyrir, en hitinn var um 25°. Seinna um daginn keyrðum við Auðunn heim til Peterborough og fengum æðislegan kvöldmat sem snæddur var úti í garði, enda veðrið til þess.

Síðustu þrjá daga hefur hitinn hérna verið um 25 gráðurnar og finnst mér alveg nóg um, en skv. spám á hitinn eftir að verða enn meiri seinna í sumar og ekki get ég nú sagt að ég hlakki til þeirra daga. Nú þarf maður að fara að fjárfesta í viftum inn í herbergin, sumarfatnaði og vatnslaug í garðinn svo hægt sé að kæla sig niður í mestu hitunum. Ef ég hef ekki bloggað svo vikum skiptir einhvern tíma í sumar, þá er ég sennilega dauð úr hita Óákveðinn

Var að setja inn myndir frá helginni og er það í albúmi sem heitir því frumlega nafni "Nýtt". Svo er ein mynd af hryllingnum í grillinu, en sú var nú aðallega sett inn fyrir mömmu, sem eeeelskar svona glænýja unga, sem og alla fugla, eða þannig Hlæjandi

Miss M.
Miss Marvellous

Halló

28. maí 2007 klukkan 17:06
Frumleg fyrirsögn, ekki satt? Svona er það þegar maður veit ekki hvað maður ætlar að skrifa um, þá setur maður bara einhverja fyrirsögn.
Við fórum til Derby í fyrradag, eins og ég var búin að tala um. Það var ágætt. Ég reyndar hélt að borgin væri svo rosalega falleg, en það var eiginlega langt frá því. Hún var ekkert spes, og miðbærinn ekki heldur. En ég keypti mér bók um franska osta, svo það bætti nú allt upp, og svo auðvitað ost sem ég hef ekki séð áður. Mmmm.....ég elska alla ostana hérna. Er búin að sjá það út að ég er mikið meira fyrir harða osta, heldur en mjúka mygluosta. Úrvalið af hörðum ostum er gríðarlegt hérna og því úr nógu að velja.

Fáum gesti um næstu helgi og ég er að sjálfsögðu farin að skoða uppskriftabækur til að finna eitthvað hrikalega gott í matinn. Sunna og Óli ætla að koma og svo ætlar Auðunn að verða eftir og gista hjá Viktori. Það er mikill spenningur í gangi!! Við Viktor förum líka í leikhús um næstu helgi. Ætlum að sjá Scooby Doo á sviði. Spenningurinn er gríðarlegur, enda nokkrir mánuðir síðan við keyptum miðana, og því búið að bíða ansi lengi.

Maggi Mús er að koma heim frá Danmörku í kvöld. 10. júní fer hann svo á Download Festival, sem er stór tónlistarhátíð hérna í Englandi. Að þessu sinni verður hún haldin á stað sem er bara í um 20. mínútna keyslu frá okkur. Nokkrir vina hans frá Íslandi ætla að koma og fá að tjalda í garðinum hjá okkur næturnar á undan.

Hreiðrið er enn á sínum stað í grillinu og mamman þáði matinn og vatnið með þökkum, enda varla verið spennt að fara út í rokið og rigninguna í gær. Við borðuðum líka góðan mat í gær, lambalæri með einni bestu sósu sem ég hef gert. Að vísu "bara" nýsjálenskt kjöt, en það er svo sem ágætt, þótt það sé langt í frá eins gott og það íslenska. Skiptir mig svo sem ekki miklu máli, þar sem ég borða ansi lítið af kjöti, heldur aðallega meðlætið.

Miss M.
Miss Marvellous

Látið ekki blekkjast!!

23. maí 2007 klukkan 16:19

Þennan brandara fékk ég sendan í tölvupósti. Sorry Valey mín að ég ákvaða að stela honum. Mér fannst hann bara svo sniðugur Brosandi

Það var ung og falleg stúlka sem var svo niðurdregin og hrygg að hún ákvað
að binda endi á þetta allt og fyrirfara sér með því að stökkva í sjóinn.

Hún stóð á hafnarbakkanum og  þegar hún ætlaði að stökkva kemur til hennar ungur sjómaður og spurði hana hvers vegna hún sé að gráta.

Hún sagðist ætla að fyrirfara sér. Honum fannst það synd og sagði við hana að hún hefði mikið að lifa fyrir. "Skipið mitt siglir til Ameríku á morgun, ef þú vilt skal ég lauma þér með. " Hann færði sig nær stúlkunni og tók utan um hana og hvíslaði að henni," ef þú verður góð við mig verð ég góður við þig".  "Já" sagði stúlkan "hverju hef ég að tapa? " Um nóttina laumaði hann henni um borð í skipið og faldi hana í einum björgunarbátnum. Hann færði henni annað slagið mat og drykk og í hvert skipti elskuðust þau heitt og innilega. Þremur vikum seinna var skipstjórinn á venjulegri eftirlitsferð og fann stúlkuna

í björgunarbátnum. Hann spurði hana hvað hún væri að gera þarna.

Hún sagði honum eins og var að sjómaðurinn væri að lauma henni til Ameríku en í staðinn svæfi hún hjá honum. Þá sagði skipstjórinn:
 

"Þú hefur verið plötuð laglega núna, þetta er Herjólfur."

Miss Marvellous

Sowwwwy!

21. maí 2007 klukkan 16:49

Ekki mikið um blogg þessa dagana, enda mikið að gera og hugsa um. En hér kemur smá update.

Á miðvikudaginn í síðustu viku fórum við til Peterborough í afmælisveislu, en hún Sunna vinkona okkar átti afmæli. Óli, kallinn hennar, hafði boðið henni í óvænta ferð til Austurríkis í vikunni á undan, og vissi hún ekkert um áfangastaðinn fyrr en hún mætti á flugvöllinn Brosandi Systir hennar kom út og var hjá strákunum þeirra á meðan. Þau komu svo heim í hádeginu á miðvikudag, en þá voru þar mamma hennar, önnur systir og mágkona hennar, alveg óvænt.

Eftir hádegi komum svo við, Árný og fjölskylda frá Northampton og Eva vinkona þeirra með sína syni, alveg óvænt líka. Þetta hafði Óli allt planað áður og heppnaðist það fullkomlega. Það var ekki slæmt að fá brauðtertur, marengstertur, kleinur og fleira góðgæti, en brauðtertubrauð þekkjast t.d. ekki hérna. Alla vega hef ég aldrei fundið svoleiðis.

Í gær fórum við svo til Healing, sem er smábær rétt hjá Grimsby, og heimsóttum frænku hans Magga sem hefur búið þar í tvö ár ásamt sinni fjölskyldu. Þau eru reyndar að flytja til Boston, svo það var ekki seinna vænna að fara í heimsókn. Sáum margt fallegt á leiðinni, öðruvísi landslag en við eigum að venjast, en mjög fallegt líka.

Magnús er farinn til Danmerkur að hitta Emil frænda sinn. Þeir ætla að vera hjá Maju systir í viku og fara á tónlistarhátíð. Hann fór með SAS frá Heathrow fyrr í dag og allt gekk mjög vel.

Miss M.



Miss Marvellous

Stolt mamma :)

15. maí 2007 klukkan 00:49

Nú er ég alveg að springa úr stolti af litla rassálfinum, honum Viktori. Í dag fékk hann viðurkenningu frá skólastjóranum fyrir góðan árangur. Fékk límmiða á peysuna sína og í skriftarbókina í skólanum, sem á stendur "Head Teachers Award". Að sjálfsögðu var hann myndaður með viðurkenninguna á peysunni þegar heim var komið. Myndirnar eru komnar inn á myndasíðuna, ásamt myndum af skrautlegu fiðrildi sem settist í runnann fyrir neðan stofugluggann fyrir nokkru síðan og ég hafði mikið fyrir að ná sæmilegum myndum af í gegnum rúðuna!! Endilega stækkið myndirnar til að sjá almennilega.

Skólastjórinn tjáði okkur þegar við náðum í Viktor að kennarinn hans hafi komið að máli við hann og sagt  að Viktor væri orðinn svo duglegur og jákvæður og miklar breytingar hefðu átt sér stað. Skólastjórinn, Mr. Slee, hefur því séð ástæðu til að veita honum viðurkenningu, sem rassálfurinn var auðvitað voðalega ánægður með. Hins vegar er hann svo mikill töffari að hann vildi ekki viðurkenna að þetta væri eitthvað merkilegt. Pabbi hans sagði honum að hann yrði að hringja í ömmur sínar og afa og segja þeim frá þessu, og ég sagði honum að þetta færi beint inn á bloggsíðuna mína. Hann ranghvolfdi í sér augunum og sagði í mæðulegum tón: "maaaaamma.......þetta er ekki svona merkilegt"! Hins vegar leyndi sér ekki hversu ánægður og montinn hann var Hlæjandi

Í síðustu viku bauð hann David vini sínum úr skólanum í heimsókn og gaf honum afmælisgjöf, en hann varð 8 ára daginn eftir og hélt ekki upp á afmælið sitt. Ég veit ekki af hverju, en kannski er það ekki venjan hjá sumum fjölskyldum hérna. Hann gaf honum Bingo spilið, gamla góða, og bók um slöngur og eðlur. David var svo ánægður að hann kom með bókina í skólann og sýndi krökkunum og kennaranum. Voðalega spennandi allt saman Brosandi 

Þetta er mikill léttir fyrir okkur, því framan af leið honum ekkert sérstaklega vel í skólanum og var tregur að fara á morgnana, en það hefur heldur betur breyst. Hann kvartar aldrei og er glaður og ánægður á leiðinni í skólann. Enda er hann farinn að tala enskuna án nokkurra vandkvæða og búinn að eignast vini. Það virðast líka flestir krakkarnir í skólanum vita hver hann er og hvaðan hann er, og það er örugglega góð tilfinning þegar maður er lítill og aumur á nýjum stað. Að hans sögn eru ALLAR stelpurnar í skólanum alltaf að heilsa honum og tala við hann. Ég spurði hann hvort þær væru ekki bara skotnar í honum, en hann sagðist sko vona ekki!! Ég held það hafi ekki verið mikil meining í því Hlæjandi

Miss M.



Miss Marvellous

Allt yfirstaðið

13. maí 2007 klukkan 12:27
Jæja, þá er þetta allt saman yfirstaðið, þ.e. Eurovision og kosningarnar. Fylgdist með Eurovision með öðru auganu, hafði ekki heyrt neitt af þessum lögum áður, en fannst slóvenska lagið langfallegast. Um úrslitin í þessari keppni má svo endalaust deila, en að mínu mati mætti fara að endurskoða hvernig staðið skal að þessu í framtíðinni. Mér sýnist, svona fljótt á litið, að flestar þjóðanna sem röðuðu sér í efstu sætin í gær hafi verið í undankeppninni á fimmtudaginn. Frekar spes Óákveðinn

Kosningaúrslitin komu ekki á óvart, reyndar bjóst ég við að Samfylkingin hefði meira fylgi og myndi bæta við sig mönnum. Hins vegar vil ég ekki trúa því að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn myndi stjórn aftur. En bíðum og sjáum hvað gerist.

Nú eru liðnir 10 dagar frá því Madeleine litlu var rænt af hótelherbergi á Portúgal, og ekkert hefur til hennar spurst. Hún varð fjögurra ára í gær. Af einhverri ástæðu tek ég þetta mál mikið inn á mig, og hugsa mikið um það. Í nótt snérust draumar mínir um þetta. Er þá kannski kominn tími til að leita sér hjálpar? Glottandi Mikið vona ég heitt og innilega að hún finnist heil á húfi.

Í gærkvöldi fékk ég sms frá Maju systir, sem var komin til Danmerkur eftir fremur ævintýralega ferð með Norrænu, skilst mér. Hún ætlaði að segja mér allt betur um það við tækifæri. Þannig að nú er fyrsti farfuglinn minn floginn frá Íslandi, og tveir eftir Brosandi

Veðrið síðustu daga hefur ekki verið neitt sérstakt, sólarlaust að mestu og í dag er rigning og voðalega hráslagalegt. Ég hef grun um að það kalli á vöfflubakstur. Best að skjóta því lymskulega að Magga, ég nefnilega nenni ekki að gera þær sjálf, en langar voðalega mikið í vöfflu með hlynsýrópi og rjóma. Ætli ég neyðist samt ekki til að fara í búðina og kaupa það sem til þarf. Kallinn er nefnilega fastur yfir formúlunni og svo byrjar fótbolti eftir það! Hmm......kannski það þýði að ég þurfi að baka líka Óákveðinn

Miss M.
Miss Marvellous

Landflótti

09. maí 2007 klukkan 09:17

Voðalega virðast margir sem ég þekki vera að flytja frá Íslandi. Maja systir að flytja til Danmerkur í dag, Kata vinkona til sama lands í sumar og Valey vinkona til Lundar í Svíþjóð. Ég veit að Ísland er ekki samt án mín, en eru þetta ekki full hörð viðbrögð? Brosandi

Það verður gaman að fara og heimsækja þær. Maður tekur bara einn góðan túr, byrjar hjá Maju á Jótlandi, svo til Kötu í Köben og endar í Lundi hjá Valey og Hjalta.
Vonandi verða Maja og Stebbi ekki mjög sjóveik um borð í Norrænu, en þau leggja af stað frá Seyðisfirði kl. 17 í dag og verða komin til Danmerkur á laugardag. Spennandi!!

Miss Marvellous