Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Miss Marvellous
  • Staður: Nottingham
  • Atvinna: Mastersnemi í alþjóðasamskiptum
  • Um mig: Hef nýlokið mastersnámi í mannréttindafræðum og er enn að læra. Hef gaman af ferðalögum (ekki tjaldferðalögum!), matargerð, söfnun uppskrifta, söng, leikhúsferðum og bókalestri. Mikil áhugamanneskja um mannréttindi, sagnfræði og mannlegt eðli.

Áfram Kalli!

28. febrúar 2007 klukkan 09:39
Það er bara hver stórfréttin af annarri í Mogganum sem maður getur ekki hjá látið að fjalla um. Kíkið á þetta:
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1255934

Þarna segir frá því að Karl Bretaprins hafi látið þau orð falla, að lykillinn að sigri í baráttunni við óhollt mataræði, sé að loka stöðum eins og McDonalds. Þetta finnst mér skýrt merki um að prinsinn sé afar vel gefinn. Er að hugsa um að senda honum bréf og segjast styðja hann í þessu. Við, ásamt Gillu vinkonu minni (Gillian McKeith) og Jamie Oliver getum svo hafið herferð gegn hroðanum. Það líður örugglega ekki á löngu þar til þið sjáið mig, Kalla og Gillu og Jamie þrammandi með áróðursskilti á Trafalgar Square.

Það fyndnasta, en jafnframt sorglegasta við þessa frétt er það talsmenn McDonalds segja prinsinn ekki vera vel að sér þar sem þeir hafi ýmislegt gert til að bjóða upp á hollari mat, innihaldslýsingar á pakkningum og að þeir styðji sjálfbæran landbúnað!!

Þvílíkir fábjánar!! Ókey, þeir styðja sjálfbæran landbúnað, en þýðir það að hamborgarinn þeirra sé hollur?? Ónei, aðeins lítill hluti af honum er kjöt, hitt er sojakjöt, alls kyns uppfyllingarefni, rotvarnarefni og fleira jukk. Hollari maturinn sem þeir tala um er sennilega salat sem þeir bjóða upp á, en hvað með það? Er ekki allt hitt jukkið óhollt, og fara ekki flestir á McDonalds til að fá sér hamborgara og franskar? Kannski þeir séu líka að tala um kjúklinginn. Hann er nefnilega svo rosalega hollur hjá þeim, ca. 40% af þessum kjúklingastykkjum er alvöru kjúklingur, restin er ýmislegt sem ég ætla ekki að nefna hér, einhver gæti í sakleysi sínu verið að borða morgunmat eða hádegismatinn sinn.

Það er einhver ástæða fyrir því að þegar ég borða mat eins og McDonalds og Burger King (sem ég reyndar hætti fyrir margt löngu síðan), þá fæ ég magapínu, liðverki, hausverk, svima og ógleði. Tilviljun? Ónei. Auðvitað fá ekki allir svona einkenni, ég er með óþol fyrir ýmsum efnum, eins og MSG, aukefnum og alls konar svona jukki sem enginn ætti að borða. Og segir það sig þá ekki sjálft af hverju mér líður svona eftir máltíð á þessum stórkostlegu stöðum?? "Maturinn" þar er stútfullur af þessum eiturefnum! Algerlega næringarsnautt og mannskemmandi  rusl sem ENGINN ætti að láta inn fyrir sínar varir!!

Vá, ég er að fatta það núna að ég hef aldrei séð myndina Super Size Me. Best að bæta úr því. Ef ykkur fannst þessi pistill vera tuð, hvernig haldið þið þá að þeir verði eftir að ég horfi á myndina? *Hnéhnéhnéhnéhné*

Miss M.



Miss Marvellous

Pattaralegur krakki

27. febrúar 2007 klukkan 12:04
Jæja, fyrst þið höfðuð enga skoðun á trúðamálinu, hvað segið þið þá um þetta:
http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1255805

Endilega tjáið ykkur um þetta mikla hitamál, mikið talað um þetta í útvarpi þessa dagana.
Og verið ekki svona feimin, það er glatað að kíkja hingað inn og sjá að enginn hefur sett inn komment um jafn alvarlegt mál og brjálaða trúða! :)
Miss Marvellous

Trúðar

25. febrúar 2007 klukkan 19:39
Ég hef alltaf haft ímugust á trúðum og sagt að þeir væru ógeðslegir. Hér með staðfestist það:
http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1255500

Hver hefur ekki heyrt af trúðum sem anga af brennivíni, þukla á ungum stúlkum, reyna við mæður barnanna og......berja börn!!? Mæli með að þessar forsmánir verði bannfærðar og brenndar á báli!!

Miss M.
Miss Marvellous

Guten Tag

19. febrúar 2007 klukkan 23:07
Jæja, kominn tími á smá röfl. Á morgun á ég að skila greinargerðinni um lokaritgerðina og er í þessum töluðu orðum komin með eitt orð á blað, fyrirsögnina!! Fyrir um 10 mínútum síðan hafði ég ekki einu sinni hugmynd um hvað mig langar að skrifa um. Þrátt fyrir ákall um hjálp frá ykkur og loforð um glæsileg verðlaun, þá fékk ég ansi lélega svörun. Piffff......og þetta kallar maður vini sína! Annars komu pabbi og Anna Sigga með ágætis hugmyndir, en því miður þá myndi það ekki ganga vel að skrifa um eitthvað sem viðkemur Íslandi eingöngu því þá þyrfti ég að verja meirihluta sumarsins þar.

Hins vegar hef ég nú ákveðið (fyrir u.þ.b. 7 mínútum) að skrifa um innflytjendur í Bretlandi (nóg er víst af þeim). Hvernig þeim gengur að aðlagast, hvaða stefnu ríkisstjórnin og borgarstjórnir hafa í innflytjendamálum, hvaða möguleika þetta fólk á þegar komið er til landsins, hvað veldur því að sumir aðlagast illa, hvaða þættir eru mest áríðandi til að vel gangi o.s.frv. Þetta verður svo útfært betur jafnóðum og ég skrifa greinargerðina, sem að öllum líkindum verður (ef ég þekki mig rétt) einhvern tíma í nótt.

Valentínusardagurinn er, eins og þið flest vitið, nýafstaðinn. Hér í Bretlandi er þetta stór dagur og því ákváðum við hjónaleysin að gerast rómantísk og glöddum hvort annað í tilefni dagsins. Ég gaf Magga tannkremtúbu og hjólabætur en hann gaf mér herðatré og uppþvottahanska.

Eða ekki.........hann fékk uppáhaldsnammið sitt (dökkar Lindt kúlur) og voðalega væmið Valentínusarkort og ég fékk konfektkassa, túlípana (uppáhalds blómin mín) og enn væmnara kort. Maggi átti svo afmæli í gær og þá fékk hann nýjan GSM síma og Zippo kveikjara. Ég bakaði köku í tilefni dagsins og svo fórum við og borðuðum á yndislegum ítölskum veitingastað í gærkvöldi.

Ég fór í Tesco í gærmorgunn og var að kaupa í kökuna sem ég hafði ákveðið að baka, ásamt fleiru. Fór í kjötborðið og keypti þar skinku og salami og fór konan sem afgreiddi mig að spyrja mig hvaðan ég væri. Hún varð alveg upprifin þegar ég sagði henni það og fór að spyrja mig spjörunum úr. Vildi m.a. fá að vita hvað gæti orðið kalt á veturna. Ég sagði henni að veðrið væri ansi dyntótt og hitastigið gæti verið frá 0° og niður í -15-20° þegar verst léti. Ég vissi ekki hvert konan ætlaði eiginlega! Hún kallaði hástöfum til annarrar konu sem var að vinna í kjötborðinu og sagði henni óðamála frá því hvað gæti orðið kalt á Íslandi. Ekki lét hún það nægja, heldur kallaði yfir ganginn til samstarfsmanns í ca. 15 metra fjarlægð að ég væri frá Íslandi og kuldinn þar gæti farið niður í -20°. Ég var orðin frekar vandræðaleg yfir flumbruganginum í henni.
Gellur ekki allt í einu í henni hvort ég geti giskað á hvaðan hún sé! "Andskotinn" hugsaði ég, því hún leit út fyrir að vera kínversk en samt ekki!! "Hvernig sný ég mér í þessu" hugsaði ég, því ég vildi ekki móðga hana með því að segja að sennilega væri hún frá Kína, ef hún væri það ekki.
"Hún gæti verið frá Víetnam", hugsaði ég, og fannst ég rosalega klár að hafa sennilega rambað á rétt svar. "Víetnam??" sagði ég varfærnislega........... "Nei......Ítalíu" tilkynnti hún mér hátíðlega, og mig langaði að bráðna á staðnum!! 
En hún bætti reyndar við að margir héldu að hún væri frá Kína, svo mér leið strax betur Skömmustulegur

Jæja, best að druuuulla sér í greinargerðina. Ég neyðist til að gefa sjálfri mér matarkörfuna. Mmmmm......Sheperds pie, pylsur, beikon, pylsurúllur, fiskbökur, búðingar, haggish og fleira breskt góðgæti. Þið misstuð af miklu Óákveðinn
Miss Marvellous

Daginn

15. febrúar 2007 klukkan 13:34
Miss Marvellous

Sjálfsvorkun!

12. febrúar 2007 klukkan 14:40
Ég á svooooooo bágt! Ég er að deyja úr kvefi, var kvefuð og slöpp í nokkra daga, varð góð í tvo daga og er svo hræðilega slöpp og kvefuð núna Gráta Það er svo pirrandi að vera endalaust stíflaður, heyrnalaus af hellum, með höfuðverk, kuldahroll og rautt nef af snýtum. Hins vegar reyni ég að berja niður sjálfsvorkunnarpúkann með því að hugsa til þeirra sem virkilega eiga erfitt og sjá jafnvel ekki fram úr erfiðum veikindum. Fólk sem maður les bloggið hjá eins og 16 ára gömul stelpa frá Ísafirði sem er lömuð neðan mittis eftir skíðaslys í Noregi og ungt fólk með krabbamein. Les reglulega bloggið hjá henni Ástu Lovísu sem var í Kastljósinu fyrr í vetur og talaði um baráttu sína við krabbamein. Ung kona sem er ein með 3 börn og þvílík hetja! Þannig að nú bara gef ég mér fastan kinnhest og segi mér að snarhætta þessu væli yfir smá kvefi Skömmustulegur

Hér er komið hið besta veður og vonandi að vorið fari að láta á sér kræla. Daginn hefur lengt svo rosalega mikið, hér er bjart til um kl. hálfsjö á kvöldin. Og mikið er yndislegt að hafa vaknað í dagsbirtu í allan vetur!
Maggi er aðeins farinn að jafna sig í handleggnum og verður vonandi orðinn algóður eftir 2 vikur.

Maggi yngri var alla helgina með fólkinu í Yorkshire (þessum morðóðu you know). Fór með þeim og krökkunum þeirra á tónleika bæði kvöldin og gisti hjá þeim. Fer svo með þeim á tónleika á miðvikudagskvöldið og aftur um þarnæstu helgi. Þau eru svo yndisleg að þau skutla honum heim svo hann þurfi ekki að taka lest, leyfa honum ekki að borga þegar þau fara að borða einhvers staðar, keyptu handa honum miða á tónleikana sem þau fara á um þarnæstu helgi og redda honum frítt á þá tónleika sem þau fá frítt á. Þau keyrðu hann hingað heim í gærkvöldi og við buðum þeim inn í kaffi. Voðalega næs fólk, sennilega spes að mörgu leyti en alveg eldhress og skemmtileg. Maggi var þvílíkt heppinn að kynnast þeim. 

Strákarnir eru að fara í 11 daga annarskiptafrí í skólunum á fimmtudaginn. Viktor getur ekki beðið og telur klukkustundirnar, ekki dagana!! Hann á sem sagt eftir að vera í skólanum í 21 klst. fram að fríi Brosandi

Við erum búin að fá sendan miða út af vinningsferðinni til Ítalíu, en þurfum að senda hann ásamt upplýsingum til að fá endanlegar upplýsingar og ferðaáætlun. Svo vorum við að vinna tvær digital myndavélar í svona svipuðum leikjum, þ.e. það komu einhver umslög inn um lúguna sem innihéldu vinningsmiða, og það var sem sagt myndavél á báðum. Önnur þeirra er eitthvert ódýrt drasl, en við bindum vonir við að hin sé almennileg. Þannig að við græðum á tá og fingri bara með því að henda ekki ruslpóstinum strax Hlæjandi

Þann 20. feb á ég að skila inn tveggja bls. greinargerð um lokaritgerðina mína, um hvað ég ætla að skrifa og hvernig ég ætla að útfæra það. Gallinn er hins vegar sá að ég hef ekki hugmynd um hvað mig langar að skrifa um!! Þannig að nú legg ég til að þið komið með tillögur, og setjið þær í kommentakerfið. Ef einhver kemur með svo brilliant tillögu að ég ákveð að nota hana, eða fæ hugmyndir út frá henni, þá fær sá hinn sami senda matarkörfu með ljúffengum breskum mat Hlæjandi
Ritgerðin á að sjálfsögðu að fjalla um eitthvað sem tengist mannréttindum. Koma svo..........

Miss M.
Miss Marvellous

Bilun?

07. febrúar 2007 klukkan 21:51
Eru fleiri sem eru með síðu hjá Bloggar að lenda í einhverri bilun? Teljarinn virðist vera bilaður hjá mér. Hann er búinn að sýna 7 heimsóknir frá því í hádeginu í gær. Þegar ég hins vegar skoða teljarann inni í umsjónarkerfinu, koma fram fleiri heimsóknir í dag heldur en þessar 7 sem teljarinn sýnir. Weird Óákveðinn

Í veðurfréttunum í dag hafa komið fram ítrekaðar aðvaranir vegna þess að hér er spáð snjókomu og allt að 15 cm föllnum snjó!! Roooosalegt alveg! Talað um að þurft gæti að leggja niður skólahald á morgun og ég veit ekki hvað. Hvernig ætli upplitið yrði á fólki ef ég segði því að á Íslandi verði snjóskaflarnir stundum 2 metra háir og að við lendum iðulega í því að þurfa að moka bílana okkar út úr stæðunum á morgnana Hlæjandi
Hér eru bílar ekki á negldum dekkjum og því getur þetta orðið til mikilla vandræða. Kannski best að halda sig innandyra á morgun ef af þessu verður. Það er alla vega ekki enn byrjað að snjóa.

Gleymdi að segja ykkur frá skondnu atviki síðast þegar ég skrifaði. Þannig var að á laugardaginn fóru ég, Kolla og Alexandra í bæinn. Ég lagði bílnum í bílastæðahúsi eins og lög gera ráð fyrir og við eyddum öllum deginum í bænum. Þegar við komum aftur í bílastæðahúsið eru sárafáir bílar eftir þar, en við sáum hvergi okkar bíl. Við löbbuðum fram og til baka, á allar hæðir (þrátt fyrir að muna glöggt á hvaða hæð við lögðum bílnum), en hvergi sáum við bílfjandann.

Okkur var farið að líða verulega illa og Kolla greyið farin að segja við Alexöndru að ef ég hefði ekki þurft að fara með þær í bæinn, þá hefði þetta ekki gerst. Ég var að fara að tala við bílastæðaverðina sem sitja í búri á neðstu hæðinni og segja þeim að bílnum hefði verið stolið, þegar ég ákvað að labba að einum bíl sem var á því svæði sem ég lagði á. Hugsaði með mér að þetta væri ekkert bíllinn minn því þessi væri svartur. Þegar ég kom nær hristi ég hausinn og hugsaði enn einu sinni að þetta væri kolsvartur bíll og ekki minn. Fór samt alveg að honum og rýndi ofan í húddið á honum.......nei, hann var biksvartur þessi bíll.

Kíkti svo af rælni á númerið á honum......og blasti þá ekki við mér númerið á okkar bíl!! Ég kallaði á stelpurnar og við förum að velta þessu fyrir okkur. Haldið þið að einhverjir óprúttnir náungar hafi ekki tekið sig til og sprautað bílinn! Hallast helst að því að bílastæðavörðunum hafi leiðst þennan daginn og fundið sér þetta til dundurs Fýldur

Nei ókey........ég skal þá segja sannleikann! Bíllinn virkaði svona kolsvartur í birtuskilyrðunum í bílastæðahúsinu. Ég lagði á annarri hæð en venjulega og þar er minni birta en á hæðinni sem við leggjum venjulega á, þannig að bíllinn virkaði biksvartur þótt maður rýndi ofan í hann.

Við fórum svo að hlæja að því á leiðinni heim ef ég hefði talað við bílastæðaverðina, sem hefðu farið að leita að bílnum með okkur, og jafnvel hringt á lögregluna og þeir hefðu svo fundið bílinn nákvæmlega þar sem hann átti að vera. Ég held ég hefði beðið þá að hengja mig á staðnum Skömmustulegur

Miss M.
Miss Marvellous

Fuglaflensa

05. febrúar 2007 klukkan 06:16
Jæja, þar kom að því. Fuglaflensan hefur stungið sér niður í Bretlandi og er stofninn sá sem dregur menn til dauða, ef flensan berst í þá. Þannig að hér er hafin vinna við neðanjarðarbyrgi og hömstrun á dósamat. Ef þið hættið að heyra frá okkur erum við annað hvort dauð eða höfumst við í byrginu. Alveg er ég viss um að dúfuófétin sem hafast við í miðbænum og sitja fyrir mér í hvert sinn sem ég kem þangað, séu smitberar og muni verða þess valdandi að helmingur íbúa í Bretlandi smitist af flensunni. Ég hefði átt að láta verða af ætlunarverki mínu, að fara með haglabyssu í bæinn og skjóta þessi sílspikuðu og ógeðslegu kvikindi.

Kolla og Alexandra komu hingað á fimmtudagsnóttina og fara eldsnemma á þriðjudagsmorgunn. Þær komu færandi hendi, með harðfisk og íslenskt sælgæti. Hér hafa verið bæjarferðir síðustu 3 daga og mikið verslað. Í morgun bauð ég upp á enskan morgunverð, pylsur, beikon og egg sem vakti mikla lukku. Þeim líst voða vel á borgina, enda er hún með eindæmum falleg og skemmtileg Brosandi

Jæja, nenni ekki að skrifa meira í bili. Læt heyra í mér fljótlega ef ég smitast ekki af fuglaflensu.

Miss M.





Miss Marvellous