Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Miss Marvellous
  • Staður: Nottingham
  • Atvinna: Mastersnemi í alþjóðasamskiptum
  • Um mig: Hef nýlokið mastersnámi í mannréttindafræðum og er enn að læra. Hef gaman af ferðalögum (ekki tjaldferðalögum!), matargerð, söfnun uppskrifta, söng, leikhúsferðum og bókalestri. Mikil áhugamanneskja um mannréttindi, sagnfræði og mannlegt eðli.

Þrumuveður og Dýralíf

25. september 2007 klukkan 14:18

Það er stundum ansi fjölbreytt dýralífið hérna við stofugluggann hjá okkur. Þegar ég settist við tölvuna í morgun, sá ég að stærðarinnar könguló sem hékk í vef sínum framan við gluggann, var að gæða sér á stærðarinnar flugu, sem barðist um á hæl og hnakka, en komst þó hvergi. Viðureigninni fylgdist ég með í um klukkutíma, en þá lauk henni með ósigri flugunnar, sem hékk lífvana í vef árásaraðila. Sigurglampinn skein úr augunum á köngulónni og hún hugsaði sér greinilega gott til glóðarinnar, að gæða sér á vænni flugu í rólegheitunum. Á  meðan öllu þessu stóð flykktust að hin ýmsu kvikindi til að fylgjast með viðureigninni, randaflugur, vespur, risafiðrildi, drekafluga, og var því ansi líflegt fyrir utan gluggann hjá mér þennan morguninn.

Í hádeginu gerði mikið þrumuveður með tilheyrandi úrhelli. Ég var að setja í uppþvottavélina og hlusta á Queen, en varð að stoppa um stund til að hlusta á þennan magnaða söng guðanna. Reiðilestur væri þó nær að kalla það. Hafið þið pælt í hvað þrumuveður er magnað fyrirbæri? Þrumurnar voru greinilega mjög nálægt okkur núna, og það er svo ótrúlegt að hlusta, manni finnst eins og himininn sé að rifna, bókstaflega. Mér finnst þetta geggjað!!

Ég er búin að skrá mig á námskeið í Pilates og byrja á fimmtudaginn. Verð að gera eitthvað til að losa um í mínum stirða líkama. Svo uppgötvaði ég líka, að sennilega hef ég aldrei verið jafn sælleg og einmitt þessa dagana. Keypti mér sko úlpu í janúar sem er í extra small og passaði að sjálfsögðu vel. Þessa dagana hins vegar líður mér eins og þétt vafinni rúllupylsu í úlpunni og á fremur erfitt um andardrátt fyrr en ég renni henni niður. Er búin að kaupa magaæfingarapparat og handlóð, og ætla að reyna að vera voða dugleg svo ég geti notað úlpuna án þess að þurfa að halda niðri í mér andanum Brosandi

Miss M.

Miss Marvellous

Mússímússí

19. september 2007 klukkan 00:32

Ætli maður verði ekki aðeins að láta vita af sér. Var að skila inn ritgerðunum mínum í gær og er þessa stundina að reyna að ákveða endanlega um hvað lokaritgerðin mín á að vera. Það er úr allt of mörgu að velja, og ætli maður að finna spennandi viðfangsefni, vera frumlegur en jafnframt skynsamur, þá vandast málin. Þarf að finna eitthvað sem ekki hefur allt of mikið verið skrifað um, en þarf jafnframt að passa að ætla mér ekki of mikið. Ég er ekki að fara að finna upp hjólið, til þess hef ég of lítinn tíma, en að ætla að skrifa um eitthvað sem margir hafa skrifað um væri að bera í bakkafullan lækinn. Mér hafði dottið í hug að skrifa um barnavændi í Austur-Evrópu eða um stöðu innflytjenda í Bretlandi. Ólík málefni, sem hafa bæði sína kosti og galla. Barnavændið hefur ekki mjög mikið verið skrifað um (mikið samt um barnavændi í Tælandi), en vilji maður taka viðtöl vandast málið. Innflytjendurnir eru, að mér finnst, ekki eins spennandi, en mjög praktískt, þar sem ég er stödd í rétta landinu og milljónir manna til að taka viðtöl við. Svo er spurning hvort maður tekur eitthvað allt annað en þetta. Ákvörðunina þarf ég að taka í síðasta lagi á morgun, því ég þarf að byrja strax! Einhverjar hugmyndir?

Að öðrum málum. Magnús er byrjaður í skólanum, og líkar vel. Hann þarf að taka strætó í bæinn (sem tekur um 40-45 mín.á þessum tíma) og labba í hálftíma til að komast á staðinn. Í morgun þegar við vöknuðum var hann kominn út, búinn að borða morgunmat og staddur á stoppistöðinni þegar ég hringdi í hann. Við áttum ekki orð þar sem hann er ekki vanur að vakna sjálfur, og koma sér út þegjandi og hljóðalaust, enda með morgunfúlari mönnum J Fyrir þá sem ekki vita það, þá er hann að læra Music Technology, sem á íslensku heitir upptökustjórn.

Viktor er byrjaður líka, og líkar ágætlega, þrátt fyrir að hann reyni stanslaust að sannfæra okkur um það hvað þetta sé leiðinlegt og hræðilegt J Hann fékk nýjan kennara, sem heitir Herra Simpson og honum íkar mjög vel við hann, sem og okkur. Hann fékk blað með sér heim í dag, þar sem útlistað er hver meginþemu vetrarins verða, og þau eru ekki af verri endanum: Rómverjar, dýr og venjur þeirra, listaverk Matisess, Hindúismi, efni og eiginleiki þeirra, Kenya, plöntur (hlutverk þeirra), sjávarlíf og seinni heimsstyrjöldin. Rosa spennandi allt saman, og Viktor er sérstaklega ánægður með að fá að læra um seinni heimsstyrjöldina, þar sem hún er honum mikið hugðarefni. Honum finnst verst ef hann getur ekki miðlað öllum sínum fróðleik til bekkjarfélaga og kennara. Ég sagði honum að hann myndi bara undirbúa sig vel þegar að þessu kemur J


Við höfum tekið eftir, að hann er farinn að tala svolítið vitlaust, beygja orð rangt og eins og hann sé að þýða beint af ensku það sem hann er að segja. Hann sem talaði mjög rétt mál, enda ekki annað hægt, með íslenskufasista sem uppalanda. Hann er líka farinn að tala upp úr svefni á ensku J En þetta breytist aftur.


Hér er að verða frekar haustlegt, laufin farin að falla og í dag var ansi kalt. Næturnar eru líka kaldar. Er farin að kveikja á miðstöðinni þegar kaldast er, aðallega á kvöldin þegar kalt er úti, enda aumingi með meiru þegar kemur að kulda. Er örugglega eina manneskjan í Englandi sem er farin að kynda! Dettur ekki í hug að sitja með grýlukerti eða sultardropa úr nefinu, vafin inn í teppi, þegar ég get kveikt á ofnunum!

Miss M.

Miss Marvellous

Darling

05. september 2007 klukkan 10:10
Margir Bretar nota orðið "darling" eða "dear" alveg óspart. Í fyrstu fannst mér þetta skrýtið, svo vandist þetta. En þegar ég fór í búðina fyrir þremur dögum fékk ég eilífa klígju fyrir orðinu darling. Fór í Tesco Express, sem er lítil búð hérna rétt hjá okkur, sem þægilegt er að hlaupa í ef lítið vantar.
Eftirfarandi samskipti áttu sér stað þar:

Afgr.kona: Hello darling
Ég: Hello
Afgr.kona skannar inn þessar örfáu vörur og segir svo: Is that everything darling?
Ég: I´ll have one Marlboro.
Afgr.kona: Red darling?
Ég: Yes please
Afgr.kona: Twenty darling?
Ég: Yes please
Afgr.kona: Alright darling, anything else darling?
Ég: Yes, a top up voucher please.
Afgr.kona: from whom darling?
Ég: Virgin
Afgr.kona: Five or ten darling?
Ég: five
Afgr.kona: Sorry darling, did you say ten darling?
Ég: No five please
Afgr.kona: Okay darling. 15pounds darling.
Ég: rétti henni 20 pund
Afgr.kona: Thank you darling. Réttir mér afgang og segir: here you go darling.
Ég: Thank you
Afgr.kona: Thank you darling......have a nice day darling.......bye bye darling!!!

Í huganum reif ég í hárið á henni, skellti hausunum á henni á afgreiðsluborðið og sagði: If you say darling one more times, I will punch your teeth out of your mouth!!!



Miss Marvellous

Svartur Dagur

01. september 2007 klukkan 22:41

Ömurlegur dagur! Fór í bæinn með Magnúsi að kaupa á hann buxur. Þurfti auðvitað að pæjast og fara í hælaháa skó. Uppskar gífurlegar kvalir í fótum, ásamt þrútnum og sárum tám. Haltraði undir það síðasta eins og fótbrotin hæna en komst við illan leik í bílinn. Á leið minni út úr bílastæðahúsinu renndi ég upp að apparatinu sem maður setur miðann í til að láta opna fyrir sig. Lít út og sé að ég hef lagt bílnum frekar langt frá apparatinu. Þar sem nokkrir bílar voru komnir á eftir mér, kemur hálfgert fát á mig. Ég ætla að reka hausinn langt út um gluggann í þeirri von að ná að stinga miðanum í, en gleymdi óvart að setja niður rúðuna og rak því hausinn af öllu afli í hana!! Öskrandi Vona að enginn hafi séð þetta, annar en asninn hann sonur minn, sem bjó sig undir ægilega hláturroku, sem var þó kæfð í fæðingu með einu morðaugnaráði! Hann má samt hlæja að þessu núna Óákveðinn

Í kvöld sat ég í mestu makindum við tölvuna þegar Viktor tilkynnir mér að það sé fiðrildi í stofunni. Ég leit við og sá þetta skelfilega ferlíki, rak upp vein, hentist af stólnum þannig að hann datt um koll, og stökk inn í eldhús á meðan ég öskraði á Magnús að bjarga okkur! Það hafðist eftir smá eltingarleik. Þetta voru þó væg viðbrögð miðað við þau sem komu um daginn þegar ég var í makindum að pissa og tók eftir fiðrildi á skáphurðinni á baðherberginu. Ég flýtti mér að ljúka mér af, kallaði á Viktor að segja pabba sínum að koma strax. Ekki var inni í myndinni að flýja fram því þá hefði ég strokist við fiðrildið. Sagði Magga að finna eitthvert apparat til að opna baðherbergishurðina, og vonaðist til að skrímslið færi ekki af stað áður en Maggi næði því. Mér varð ekki að ósk minni, skrímslið flögraði upp um leið og hann opnaði og í átt að mér!

Viðbrögðin vöktu í senn undrun og skelfingu meðal annarra heimilismeðlima, þar sem ég fékk tryllingskast, með tilheyrandi öskrum, steppi, handapati og að lokum flótta út af baðherberginu. Þeir stóðu greyin og horfðu á mig eins og ég hefði misst vitið, sem ég vissulega gerði!! Allir voru of lamaðir til að mæla orð af vörum, fyrr en löngu seinna, þegar eldri sonurinn spurði mig varfærnislega hvort ég ætti ekki að tala við lækni. Þetta væri ekki alveg eðlilegt Óákveðinn 

Nú er ég búin að drekka eitt glas af Amarula til að reyna að ná mér eftir áföll dagsins. Hugsa að ég sturti í mig einu í viðbót. Spurning hvort ég þarf ekki að fá mér eitt til tvö staup á hverju kvöldi næsta mánuðinn, þar sem fiðrildatíminn fer senn að renna upp, svo ég tali nú ekki um andskotans hrossaflugurnar sem tröllríða öllu á haustin! Ó mig auma Gráta

Miss M.

Miss Marvellous