Sowwwwwy :/
Vá, ekki alveg að standa mig hérna. Ég sem lofaði að vera duglegri að blogga fram að jólum, en svo er bara brjálað að gera og enginn tími fyrir blogg.
En alla vega, undirbúningurinn fyrir jólin gengur ágætlega fyrir sig. Er búin að baka kryddbrauð og gera rauðkál og ís. Á eftir ætla ég að baka eina smákökutegund og rúgbrauð og annað kvöld steikjum við soðbrauð eins og við gerum á hverju ári fyrir jólin. Í fyrramálið baka ég marengsbotna og eftir hádegi förum við Maggi í bæinn og kaupum restina af gjöfunum.
Búið að vera rosa spennandi hjá Viktori, þar sem jólasveinarnir byrjuðu að koma til hans fyrir nokkrum dögum, eins og lög gera ráð fyrir. Í skólanum föndraði hann sparigrís sem hann gaf okkur í jólagjöf. Í gær var jólapartý hjá bekknum og voru allir beðnir að koma með smá veitingar. Við vorum beðin að koma með pizzu, og að sjálfsögðu bakaði ég eina slíka. Ætlaði sko ekki að mæta með eitthvert búðardrasl, eins og flestir, ef ekki allir, hafa eflaust gert. Hér er fólk ekki mikið fyrir að baka eða gera sjálft (með mörgum undantekningum að sjálfsögðu). Anyway, þá sagði Viktor að öllum hefði þótt pizzan rosalega góð, en svakalega sterk
Ég gleymdi alveg að hugsa út í það að þeim gæti þótt svona mikið pepperoni sterkt, en Viktor laug að þeim að ég hefði sett eitthvert rosa sterkt krydd á pizzuna. Veit ekki hvað kennarinn hefur haldið! Vonandi heyrði hann þetta ekki ![]()
Hann er svo að fara í afmælispartý hjá bekkjarbróður sínum þann 29. desember. Það verður haldið í keiluhöll hérna og það verður farið í einhvern lazer skotleik, eitthvað svo svakalega spennandi að hann er nánast hættur að sofna á kvöldin fyrir spenningi!!
Nú eru bara tveir dagar í að Maja og Stebbi komi, og strákarnir orðnir þvílíkt spenntir. Við erum að mála hjá okkur forstofuna og upp stigann, veggurinn var orðinn frekar ógeðslegur, enda ekki geðsleg málning sem þeir nota hérna. Vonlaust að þrífa þetta. Búið að skreyta pínu og ætli ég klári það ekki í kvöld. Nú er hins vegar illt í efni varðandi jólatréð. Munið þið, að ég var að tala um lítið svart jólatré sem ég ætlaði að kaupa í Tesco? ÞAÐ ER BÚIÐ!! Og ekki nóg með það! Við finnum ekkert ásættanlegt tré, eða eiginlega bara ekkert tré! Allt búið, og lifandi trén of stór! Ég sagði við Magga að við myndum enda með hrífuskaft og vír, en það verður bara svo að vera.
Hamborgarhryggur, hangikjöt og malt og appelsín komið í hús, ásamt íslensku nammi og Maja kemur með Nóa konfektið. Svo þetta verða hin fínustu íslensku jól. Meiningin er reyndar að blanda aðeins íslensku og bresku, eða hafa breskt með svona eins og hægt er. Það verður náttúrlega að taka með í reikninginn að við finnum kannski ekkert rosalega margt breskt, sem er ætilegt. Ég ætla samt að fá mér breskan jólabúðing með brandísmjöri yfir. Breskara gerist það ekki, en ég geri ekkert ráð fyrir að það sé gott. En maður verður að prófa. Svo verða einhverjar fleiri breskar hefðir sem ég segi ykkur frá í næsta bloggi.
Ætla að drífa mig í bakstur og tiltekt. Ef ég rolast ekki til að blogga aftur fyrir jól, þá óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og vona að þið hafið það gott :)
Miss M.
