Blogghlé
Var búin að skrifa langa færslu fyrir nokkrum dögum um afmælisgjöfina hans Magga, en hún vistaðist ekki!! Þannig að í stuttu máli, svona af því ég sagðist ætla að segja ykkur af henni, þá fékk hann miða á tónleika með Neil Young og sveif um á bleiku skýi í nokkra daga, með aulabros á fésinu, svona eins og nýbakaður pabbi
Þetta átti sér allt smá sögu, sorgarsögu eiginlega, sem endaði svona líka vel. En það kostaði líka blóð, svita og tár (almost) að komast yfir miða. Segi ykkur kannski betur af því seinna.
Ég ætla að taka mér bloggfrí þar til í lok mars. Er komin í mikla tímaþröng með ritgerðina mína og ætla að reyna að gera EKKERT annað en hugsa um hana þar til ég á að skila. Sem þýðir að maðurinn minn þarf að sinna öllum heimilisstörfum (sem hann er reyndar duglegri við en ég), elda mat, kaupa inn, aðstoða við heimanám og allt annað sem til fellur. Þannig að það eru spennandi tímar framundan hjá honum ![]()
Reyndar erum við að fara til London um þarnæstu helgi, en við erum að fara að hitta Sveinu og Ella, vinafólk okkar sem býr í Noregi. Segi ykkur allt um ferðina síðar, og líka frá tónleikunum sem ég er að fara á í sumar. Fæ fiðring í magann við tilhugsunina. Bon Jovi gott fólk, BON JOVI!! Við Maggi förum með Heiðu og breska spúsanum hennar, og munum við gista eina nótt á flottu hóteli. Þetta verður í úthverfi London. Allt um það seinna.
Þangað til næst; hafið það gott, gangið hægt um gleðinnar dyr og ef ég voga mér að skrifa hingað inn fyrir lok mars, eða þið sjáið mér bregða fyrir annars staðar á netinu, þá megið þið sparka fast í mig!!
Kiss kiss
Miss M.
