09. apríl 2008 klukkan 09:23
- Yfir milljarður jarðarbúa hefur ekki aðgang að heilnæmu drykkjarvatni.
- Um 6 þúsund börn deyja daglega af þessum orsökum og mun fleiri veikjast alvarlega.
- Skortur á aðgengi að hreinu vatni er næstalgengasta dánarorsök barna undir fimm ára aldri í heiminum.
- 400 milljónir skólabarna eru með skerta námsgetu vegna ormasýkingar.
- Hundruð milljón jarðarbúa hefur eingöngu aðgang að vatni sem er spillt af hættulegum örverum eða efnum.
Nú stendur yfir Vatnsvika UNICEF. Almenningi gefst kostur á að styrkja vatnsverkefni UNICEF í þróunarlöndunum með því að leggja fram fjárframlög í gegnum heimasíðuna www.vatnsvika.is
Jafnframt stendur gestum valdra veitingastaða til boða að styðja við framtakið og greiða 250 krónur fyrir glasið af kranavatni.
Ég vil hvetja alla til að láta ekki sitt eftir liggja. Málefnið er afar brýnt!