Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Miss Marvellous
  • Staður: Nottingham
  • Atvinna: Mastersnemi í alþjóðasamskiptum
  • Um mig: Hef nýlokið mastersnámi í mannréttindafræðum og er enn að læra. Hef gaman af ferðalögum (ekki tjaldferðalögum!), matargerð, söfnun uppskrifta, söng, leikhúsferðum og bókalestri. Mikil áhugamanneskja um mannréttindi, sagnfræði og mannlegt eðli.

Bon Jovi!!!

27. júní 2008 klukkan 18:18
Jæja, þá er loksins komið að því! Bon Jovi tónleikarnir á morgun og ég fæ loksins að hitta Heiðu. Búin að þekkja hana lengi, tala við hana daglega á msn og í síma einu sinni í viku (yfirleitt nokkra klukkutíma í senn) en hef aldrei hitt hana. Þetta verður örugglega frekar sérstakt. Okkur finnst báðum eins og við höfum þekkst alla ævi, eigum rosalega margt sameiginlegt og hugsum að mörgu leyti eins. Þegar maður hittir fólk í fyrsta skipti, þá þekkir maður það venjulega ekki, en við þekkjumst mjög vel og þess vegna er þetta svolítið sérstakt. Við erum báðar þvílíkt spenntar yfir því að vera loksins að hittast.

Við Maggi leggjum af stað um tíuleytið í fyrramálið. Ætlum að keyra til London því lestin var svo rosalega dýr og svo hefðum við þurft að taka underground að hótelinu sem er langt frá centralinu í London og það kostar líka peninga, og svo hefðum við þurft að borga geymslugjald fyrir bílinn á lestarstöðinni. Þegar upp er staðið erum við að spara okkur meira en helming á því að keyra. Ekki að mér sé sérstaklega vel við að keyra á hraðbrautinni í tvo og hálfan tíma :/
Ég kannski helli bara í mig einhverju af eðalvínunum sem ég ætla að taka með mér, svona til að róa taugarnar.

Vona að tónleikarnir verði geggjaðir, og býst reyndar ekki við öðru. Kannski ég verði vond, og hringi í Möggu vinkonu þegar þeir taka Living on a Prayer....hehehe!

Update eftir helgi :)

Miss M.

Miss Marvellous

9 ára!

24. júní 2008 klukkan 16:45

Meira hvað tíminn líður! Viktor orðinn 9 ára gamall! Ég trúi því varla, finnst hann bara vera pínulítil mús ennþá :)
Spenningurinn var þvílíkur, að hann vakti mig klukkan 6 í morgun til að opna gjafirnar sínar, og sofnaði ekki aftur!
Eftir smástund erum við að fara út að borða á elstu krá Englands, sem er niðri í miðbæ og er frá árinu 1189! Viktor valdi þennan matsölustað. Vonandi fæ ég eitthvað ætt þar.
Afmælisbarnið fór með Síríuslengjur í skólann handa bekkjarfélögunum, en hér tíðkast það að afmælisbörnin komi með sælgæti á afmælinu sínu. Þegar ég náði í hann voru mestu grísirnir búnir að borða sitt súkkulaði og voru dugleg að segja mér hversu gott það hefði verið :)
Hann ætlar svo að bjóða nokkrum strákum úr bekknum heim fljótlega og hafa smá afmælispartý.

Later

Miss M.

Miss Marvellous

Bitin :(

19. júní 2008 klukkan 23:58
Ég á rosalega bágt þessa dagana. Ég er með hvorki meira né minna en þrjú bit á líkamanum, tvö á vinstra læri og eitt á mjöðminni. Vissi fyrst ekkert hvað þetta var og þegar ég var búin að klóra mig blóðuga og marða í nokkra daga ákvað ég að kíkja til læknis. Sýndi henni þessa fallegu bletti sem eru upphleyptir og svæðið í kringum þá stokkbólgið, og sá hún strax að ég hefði verið bráð einhvers skemmtilegs kvikindis. Hún sagði að það kæmu margar tegundir til greina, það væri allt morandi í flugum sem meðhöndla mann svona skemmtilega. Þar sem ég minnist þess ekki að hafa fundið fyrir að hafa verið bitin fannst henni líklegast að það hefði gerst meðan ég svaf. Verulega næs tilhugsun að það hafi jafnvel verið moskítófluga undir sænginni minni! Og ég sem var að lesa það, að moskítóflugur eru hættulegustu dýr heims, drepa um tvær milljónir manna árlega! Eins gott að ég er ekki með bráðaofnæmi fyrir moskítóbiti, þá hefði ég gefið upp öndina í svefni, þ.e. ef þetta er moskítóbit.
Læknirinn skrifaði upp á töflur fyrir mig til að taka og á morgun ætla ég að bæta við einhverju kremi til að bera á flugnabit. Þetta er verulega vont :(

Ég bíð enn eftir niðurstöðum úr lokaritgerðinni minni. Ef allt fer vel ætti ég að útskrifast í júlí, tveimur dögum áður en við fljúgum til Íslands á ísbjarnaveiðar. Erum búin að græja okkur vel og hlökkum mikið til að takast á við þessi krúttlegu dýr.

Um helgina fáum við til okkar góða gesti frá Leicester og Peterborough. Viktor á afmæli á þripjudaginn og það verður smá veisla um helgina. Á sjálfan afmælisdaginn vill hann fara og borða á elstu krá Englands. Sennilega býður hann svo nokkrum strákum heim í smá veislu.
Um þarnæstu helgi er svo komið að tónleikaferðinni okkar Magga. Við tökum lest til London, hittum Heiðu og Carl og förum á Bon Jovi tónleika seinni partinn á laugardeginum. Förum svo á hótelið okkar, skiptum um föt og förum út að borða. Gistum á hótelinu um nóttina og tökum lest til baka á sunnudeginum. Er farin að hlakka mikið til. Við Heiða munum væntanlega stúta nokkrum hvítvínsglösum, enda miklir unnendur þess góða drykkjar.

Well, þarf að hlaupa upp og ná í gaddaburstann til að klóra mér í
bitunum ;(

Later

Miss M.

Miss Marvellous

Saggaböggur

10. júní 2008 klukkan 09:37
Skrýtin fyrirsögn? Fyrir flesta sennilega, en ekki fyrir mína fjölskyldu sem veit hvað saggabagga er. Það er nefnilega skjaldbaka. Þegar hún Sunna frænka mín var lítil og bolluleg, ekki orðin eins árs sennilega, þá var þetta það sem kom út úr henni þegar hún ætlaði að segja skjaldbaka. Hún átti nefnilega plastskjaldböku sem hún hélt mikið upp á. Algjör rúsína Brosandi

Viktor og Magnús eru rosalegir dýrakallar, elska dýr út af lífinu. Þar sem Viktor er með ofnæmi fyrir köttum og hundum getum við augljóslega ekki fengið okkur slíkar skepnur, þótt löngunin í kisu sé frekar mikil á heimilinu. Mýs, hamstrar og svoleiðis viðbjóður kemur ekki til greina af minni hálfu, svo niðurstaðan varð skjaldbaka. Í gær fórum við og festum okkur skjaldböku sem mun verða sótt í dag. Hún er pínulítil, sennilega um 3cm. en getur orðið allt að 20-25cm. Það tekur þó langan tíma fyrir hana að ná fullri stærð. Hún getur orðið allt að 30 ára gömul. Við tökum tvær, en Óli og Sunna ætla að fá hina. Þau eru líka búin að bjóða sig fram sem skjaldbökupíur þegar við förum til Íslands Brosandi

Skjaldbakan hefur þegar fengið nafn, en Viktor vill endilega kalla hana Dumbledore! Svo Dumbledore skal hún heita. Strákarnir eru að springa úr spenningi og Magnús er búinn að hanga á netinu og lesa sér til um gripinn til þess að við munum meðhöndla hana rétt og læra að þekkja hana. Þetta eru stórmerkileg kvikindi og það sem meira er, bráðskemmtileg OG krúttleg! Sjáið þetta myndband t.d: http://youtube.com/watch?v=fJr2evLANsE

Í gær var hér mannskaðahiti, 33° og sól, ekki ský á himni. Skelfilegt bara! Í dag er mun skaplegra, sennilega rúmlega 20° og ekki eins mikil sól. Vona að hitinn muni ekki ganga af mér dauðri áður en ég næ til Íslands. Er nefnilega farin að bíða spennt eftir að fá flatbrauð og hangikjöt Glottandi

Miss M.
Miss Marvellous

Versta mamma í heimi - en ekki þó lengi!

05. júní 2008 klukkan 10:22
Fór í Tesco um daginn með Viktori, en hann kemur mjög sjaldan með mér í búðir þar sem honum leiðist það með eindæmum. Hann vildi sem sagt fara með til að bíða hjá geisladiska- og bókarekkunum og skoða. Ég skil hann eftir þar og segi honum að fara ekki þaðan því þá gætum við lent í vandræðum með að finna hvort annað. Gerum þetta í þau skipti sem hann kemur með mér og svo næ ég bara í hann þegar ég er búin að versla.

Ég fer lengra inn í búðina og versla, sem tekur svolitla stund en þó ekki mjög langa. Fer svo á kassa og borga, set í poka, pokana í innkaupakerruna og fer svo með góssið út í bíl. Skila af mér innkaupakerrunni, sest upp í bílinn og bakka út úr stæðinu. Keyri af stað heim með útvarpið á. Þegar ég nálgast götuna okkar kemur flott lag í útvarpinu og ég ákveð að rúnta um meðan lagið er. Strax á eftir kemur annað flott lag og ég ákveð að rúnta lengur. Þegar laginu er lokið ek ég áleiðis heim. Þegar ég er að beygja inn götuna var eins og ég hefði verið skotin í hausinn! Viktor var enn í Tesco!!!

Ég fékk áfall, bruna af stað í átt að Tesco og vona að hann sé ekki farinn að leita að mér í búðinni. Sé hann fyrir mér skælandi yfir því að finna mig ekki. Þegar að Tesco er komið legg ég bílnum í fyrsta stæði sem ég kem að, sem er stæði fyrir fatlaða, en þau skipta tugum og eru alltaf tóm svo ég fékk engan móral. Hleyp inn og að geisladiskarekkunum, enginn Viktor! Að dótarekkunum, enginn þar. Flýti mér að bókarekkunum og þar situr litla músin mín og les í bók. Þvílíkur léttir!

"Loksins kemurðu" var það fyrsta sem ég fékk að heyra. Þegar ég sagði honum frá þessu sagði hann: Ertu að segja mér að þú hafir gleymt mér í búðinni"?, og bætti svo við: "það er vissara að koma ekki með þér í búð aftur".
Frekar móðgaður!
 Mér leið eins og ég væri versta mamma í heimi. Það stóð þó ekki lengi, því þegar við komum út sé ég konu henda tveimur grenjandi börnum inn í aftursæti á bíl. Hún fór svo aftur í til þeirra hinum megin, og ég sé hana reiða höndina til höggs tvisvar eða þrisvar. Veit ekki hvort hún var að lumbra á öðru barninu eða báðum, en mig langaði að fara og draga hana á hárinu út úr bílnum og berja hana!! Andskotinn, hvað maður verður reiður þegar maður sér svona! Mér fannst ég ekki lengur vera versta mamma í heimi. Bara mamma sem var svolítið utan við sig akkúrat þarna J 

Rúmið kom loksins í gær. Eftir “æðislegu” þjónustuna hjá þeim bættu þeir um betur. Við borguðum 40 pund fyrir að fá rúmið sent heim og konan sem seldi okkur það sagði að þeir tækju gamla rúmið í sundur og færu með það. Þegar þeir komu upp í herbergi í gær spurðu þeir furðu lostnir hvað ætti að gera við rúmið. Ég sagði þeim að okkur hefði verið sagt að þeir tækju það. Nei, það gerum við ekki. Þá hefðir þú þurft að borga 40 pund í viðbót. Ég marg-endurtók að okkur hefði verið sagt þetta. Fyrir náð og miskunn (eða bara til að sleppa við nöldrið í mér), þá tóku þeir rúmið í sundur. Ég fór að keyra Viktor í skólann á meðan og Magnús var bara heima og ekkert að fylgjast með því hvað þeir væru að gera. Þegar ég kem aftur eru þeir búnir og eru að ganga frá hérna fyrir utan. Ég sá að dýnan og botninn úr gamla rúminu stóð úti á lóð en sá hvergi rammann. Ég spurði þá hvar ramminn væri og þeir sögðu að hann væri inni á baðherbergi!! Ég spurði af hverju þeir hefðu ekki sett hann út eins og hitt og fékk þá þau svör að það væri ekki þeirra verk! Ég hristi bara hausinn, nennti ekki að skammast meira, enda búin að gera þeim vel ljóst hvað mér finndist um þetta blessaða fyrirtæki og þjónustuna þar! Þeir voru hálfsneyptir greyin þegar þeir fóru. Annar þeirra var svo hryllilega óheppinn að gleyma sólgleraugunum sínum uppi í herbergi, og þurfti að koma aftur til að ná í þau. Honum hefur örugglega ekki liðið vel greyinu......hahaha
J

En rúmið er rosalega flott. Verð að henda inn mynd af því við tækifæri. Við ætlum svo að fá okkur nýjar gardínur og ljósakrónu. Við höfum ekki tímt að vera að gera neitt svona hérna, erum bara með gardínurnar og ljósin sem voru, af því við vissum ekki hversu lengi við yrðum. Núna langar mann hins vegar að flikka aðeins upp á þetta, enda þarf maður að hafa fínt þegar búið er að kaupa svo glæsilegt rúm!  
Jæja, ætla að fá mér að borða eftir að hafa tekið ærlega á því í ræktinni J 


Miss M.

Miss Marvellous