Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Miss Marvellous
  • Staður: Nottingham
  • Atvinna: Mastersnemi í alþjóðasamskiptum
  • Um mig: Hef nýlokið mastersnámi í mannréttindafræðum og er enn að læra. Hef gaman af ferðalögum (ekki tjaldferðalögum!), matargerð, söfnun uppskrifta, söng, leikhúsferðum og bókalestri. Mikil áhugamanneskja um mannréttindi, sagnfræði og mannlegt eðli.

Ehh.......meira update, eða eitthvað :/

25. ágúst 2008 klukkan 19:49
Merkilegt hvað getur verið erfitt að finna fyrirsagnir þegar maður er að fara að blogga. Ákvað að henda inn einni færslu meðan ég bíð eftir að maturinn verði tilbúinn.

Maggi kom heim á fimmtudaginn eins og til stóð og gekk ferðalagið ágætlega. Hann hefur verið óttalega ræfilslegur síðan hann kom, verkjaður og voða þreyttur, eða fljótur að lýjast. Í dag hefur hann þó að mestu verið verkjalaus og brugðum við okkur á kaffihúsið okkar góða, en það þurfti ekki meira til en það til að öll hans orka kláraðist og þurfti hann því að leggjast fyrir þegar við komum heim. Þetta fer þó vonandi batnandi með degi hverjum :)

Óli og Sunna komu með skjaldbökuna, sem þau voru svo góð að passa fyrir okkur meðan við vorum á Íslandi, á laugardaginn. Mikið gaman að fá þau að venju og skjaldbakan hefur stækkað um helming. Ég rak upp stór augu þegar ég sá kvikindið og Óli sór og sárt við lagði að þetta væri sama skjaldbakan! Kvikindið hefur greinilega náð að bræða þau með blakandi augnaráði sínu og eilífum sníkjum um mat :)

Strákarnir byrja í skólanum í næstu viku. Ekki lengi að líða þetta frí. Þarf að fara og kaupa eitthvað af skólafötum á Viktor og fara með hann í klippingu. Ég hef ekki enn komið mér af stað í ræktina eftir að ég kom, en það stendur til bóta strax á morgun.
Mér finnst yndislegt að það sé farið að dimma snemma á kvöldin aftur. Komin með nóg af birtu fram eftir öllu! Finnst mikið meira kósý að hafa dimmt.

Er ekki enn búin að sækja um í skólann. Aðra stundina er ég ákveðin í að fara, en hina nenni ég engan veginn aftur í strembið og erfitt nám strax. Er ennþá þreytt eftir hitt held ég, svei mér þá. En ætli ég skili ekki inn umsókn á morgun og sjái svo til. Svo er það auðvitað valkvíðinn. Er með tvo kúrsa í sigtinu og get engan veginn ákveðið hvor mér finnst meira spennandi!!
Ætli það sé hægt að fara í dáleiðslu til að lækna valkvíða? :/

Við gátum sem betur fer horft á úrslitaleikinn í handboltanum í gær. Allir rifu sig á fætur, sannfærðir um að vera að fara að horfa á Íslendinga taka Frakka í bakaríið. Því miður fór ekki svo, en mikið voðalega erum við samt ánægð með handboltastrákana. Þetta er ekki lítill árangur sem þeir náðu. Virkilega gaman að þessu.

Jæja, nóg komið í bili.

Miss M.
Miss Marvellous

Update

16. ágúst 2008 klukkan 01:26
Jæja, þá er Maggi búinn að fara í aðgerð. Hún var framkvæmd á miðvikudaginn og gekk vel. Hann var svo sendur norður með sjúkraflugi í gær til að liggja á FSA en var útskrifaður þaðan í dag. Hann kemst samt ekki heim fyrr en á fimmtudag í næstu viku, ekki óhætt fyrir hann að ferðast fyrr.
Maggi Jr. er farinn í tónleikaferðalag fram á þriðjudag svo við Viktor erum ein í kotinu. Ætlum að hafa það kósý saman og fara svo í bíó um helgina.
Ég tók mig til í gær og hreinsaði út úr þessum eina skáp sem er í íbúðinni (fyrir utan fjóra eldhússkápa sem ég hef). Mér tókst samt sem áður að fylla 3 svarta ruslapoka, af rusli, þ.e. fötum og ýmsu drasli sem fer á haugana!! Ótrúlegt hvað maður er duglegur að safna drasli og þrjóskast við að henda fötum sem aldrei verða notuð aftur. Er svo búin að nýta góða veðrið í að þvo gardínur, rúmteppi og rúmföt og hengja út til þerris, því ekki er þurrkaðstaðan beisin hérna!
Helgin verður svo m.a. notuð í að klára umsókn fyrir skólann sem ég ætla að skila inn á mánudag.

Er búin að vera að velta fyrir mér hvað maður er fljótur að venjast breyttum aðstæðum og temja sér nýja siði þegar maður skiptir um umhverfi. Þegar ég var á Íslandi um daginn, þá átti ég stundum ekki orð yfir "ókurteisina" og asann í fólki. Ef manneskja rekur sig utan í mann í búð eða einhvers staðar hérna í UK, þá segir hún umsvifalaust "sorry". Á Íslandi segir fólk ekki neitt þótt það labbi utan í mann. Svo fór rosalega í taugarnar á mér þegar ég fór í matvörubúð, að það var byrjað að afgreiða næstu manneskju áður en maður var byrjaður að setja vörurnar sínar í poka. Öllu blandað saman á bandinu og maður hamaðist við að tína í poka til að forða sér sem fyrst. Hérna er ekki byrjað að afgreiða næsta kúnna fyrr en manneskjan á undan er farin! Mér fannst þetta pirrandi, og þurfti stundum að minna mig á að fólk er ekki dónalegt eða ókurteist, heldur er þetta bara svona. Mér fannst ég stundum hálf hallærisleg að vera að biðja fólk afsökunar á því að hafa rekið mig í það, vegna þess að iðulega fékk ég skrýtinn svip frá fólki fyrir vikið :/

Jeppaeign Íslendinga er annað sem maður furðaði sig á. Það lá við að annar hver bíll á bílastæði Glerártorgs væri jeppi og ég stóð mig að því að hrista hausinn yfir þessu. Hér sjást ekki jeppar á götunum. Ekki þar fyrir, að þeirra er nú svo sem ekki þörf hérna, en alveg er ég viss um að meira en helmingur þeirra sem ekur um á jeppa á Íslandi hefur ekki þörf fyrir það. En auðvitað kemur mér það ekki við. Kannski er ég bara orðin svona smásálarleg og hlynnt minimalisma eftir tveggja ára dvöl hérna úti :/
Erla systir sagði að ég væri orðin nískupúki eftir dvölina hérna af því ég týmdi ekki að kaupa mér tertusneið á 680 krónur á Bláu könnunni.

Vissulega er ég orðin mun aðsjálli í peningamálum og stend mig oft að því að týma ekki einhverju sem ég hefði ekki kippt mér upp við áður, en að selja eina kökusneið á tæpar 700 krónur finnst mér vera rán! Ég get gert heila svona tertu heima hjá mér fyrir minni pening. Ég tók eftir því að grænmetisbökusneið sem kostaði 490 krónur fyrir tveimur árum á Bláu könnunni kostaði nú 780 krónur!! Glæpastarfsemi og ekkert annað. Keypti mér samt eina, svona svo ég komi nú með eitthvað mér til málsbóta :)

Jæja, kominn háttatími.

Later

Miss M.
Miss Marvellous

Skrýtin heimkoma!

11. ágúst 2008 klukkan 13:49
Jæja, þá erum við komin heim, en án Magga (eldri). Hann var svo "heppinn" að fá brjósklos þegar við vorum búin að vera viku á Íslandi. Fór á slysadeildina á FSA og fékk uppáskrifuð verkjalyf. Nokkrum dögum seinna versnaði honum svo mikið að hann þorði ekki annað en fara aftur á slysadeildina. Hann var þá lagður inn til verkjastillingar og frekari rannsókna. Þar lá hann þar til í gær, en þá var hann fluttur suður með sjúkraflugi og bíður aðgerðar, sem væntanlega mun fara fram á morgun (þriðjudag). Það hefði ekki verið séns fyrir hann að koma með okkur til baka, enda getur hann ekki beðið með að komast í aðgerð og hérna hefði hann þurft að bíða lengur. Svo "heppilega" vildi til, að þegar vinkona mín, sem vinnur hjá Icelandair, bókaði flugið fyrir okkur heim, þá gleymdi ég að minnast á forfallagjald við hana og því borguðum við það ekki og gátum því ekkert gert til að breyta fluginu, nema borga um 100.000 kr.  Svo við hypjuðum okkur heim á réttum tíma.
Hér er voða skrýtið að vera, vitandi af Magga á spítala á Íslandi. Við erum þó þakklát fyrir að hann kemst í aðgerð, því venjulega er margra mánaða bið í slíkar aðgerðir. Og það sama er uppi á teningnum hérna í Englandi, nema maður fari á einkastofu, en það kostar bæði nýra og lifur!

Það var yndislegt að vera heima í sól og hita allan tímann og að hitta allt þetta fólk. Ég var upptekin nánast alla daga og öll kvöld við að hitta vini. Ætlaði svo að eyða nokkrum dögum í Reykjavík og hitta fleira fólk þar, en því miður varð það ekki, þar sem við fórum ekki suður fyrr en daginn sem við flugum heim. Við fengum auðvitað fullt af góðum mat, hangikjöt, læri, kjöt í karrý, íslenskan fisk, hamborgarhrygg og fleira og fleira. Þökkum ykkur öllum kærlega fyrir okkur.

Nú bíð ég spennt eftir að Valey vinkona fari á fæðingardeildina. Hún var skrifuð inn þann 3. ágúst, en í morgun var enn ekkert að gerast. Óþekktarormur þar á ferð greinilega. Valey mín, ég sendi þér hríðarstrauma og hlakka til að fá fréttir.

Jæja, þetta átti bara að vera stutt, rétt til að láta vita af okkur. Leyfi ykkur að fylgjast með hvernig gengur með Magga.

Kv.

Miss M.
Miss Marvellous